Miðvikudagur, 26. mars 2008
Spakmæli vikunnar:
Ég gerði merkilega uppgötvun í dag. Ég uppgötvaði að bros er jafnsmitandi og
flensa.
Það brosti til mín alókunnugur maður og ég brosti á móti og hélt svo bara áfram
að brosa.
Ég labbaði fyrir næsta horn þar sem ég mætti öðrum ókunnugum manni.
Þegar hann sá mig brosa, brosti hann á móti og gekk svo brosandi í burtu. Þá
laust niður hjá mér þessari staðreynd, ég hafði smitað hann.
Guð veit hvað hann hitti marga og smitaði þá. Ég fór að hugsa um þetta bros og
skildi þá hversu mikils virði það er.
Eitt lítið bros eins og mitt, gæti breiðst út um heimsbyggðina.
Svo ef þú finnur að þú ert að bresta í bros, ekki halda aftur af því. Komum af
stað faraldri sem fyrst, stefnan er að smita allann heiminn.
BROSTU
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 9. mars 2008
Spakmæli dagsins
Ég er ákveðin í að vera jákvæð og hamingjusöm,
hverjar sem aðstæðurnar eru, því ég hef lært af
eigin reynslu að stór hluti af hamingju okkar og
að sama skapi vansæld okkar byggist á viðhorfi
okkar en ekki kringumstæðum. Martha Washington.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 3. mars 2008
VANDAMÁLATRÉÐ
![]() Ókunnur höfundur |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 25. febrúar 2008
Eitt lítið ljóð fyrir svefnin
1970 |
svo einn tvo þrjá kannski fjóra daga stelst sólin norður þar sem það snýr rassinum í vindinn þetta land hvað verður gaman þá! fjöllin gráta af gleði grænkar lítið strá krían sem kann ekki að syngja syngur líka þá sjórinn í fjörunni sofnar sílin fara á stjá hvað verður gaman þá! kófdrukknar kýrnar kúvenda flórnum á langir og mjóir dagar neita að líða hjá |
Pétur Gunnarsson |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 25. febrúar 2008
Konudagur
Jæja þá er nú þessi helgi liðin Evrovísion keppninni lokið hér og að mínu mati vann besta lagið
svona einhvernvegin ekta júróvísion lag, svo er bara að sjá hvernig gengur þegar á hólminn er komið.. Æiiii!
En hvað ég vildu að allir dagar væru konudagar
Bakkkelsi og blóm í morgunsárið
En því er ekki að heilsa
: Ný og vonandi góð vinnuvika frammundan fyrir alla
kv Sessa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 23. febrúar 2008
klaufi
Gat nú skeð!
Var að fikta eitthvað í stillingum og nema hvað! Bloggsíðan mín datt út
En snillingurinn hún Sessa reddaði þessu auðvitað og kom þessu bara í loftið aftur Veiiiiiiiii
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)